06.06.19 - 14:13
Elvar Geir Magnússon
Breiðablik selur Hendrickx til Lommen (Staðfest)

Jonathan Hendrickx.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jonathan Hendrickx.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik hefur samþykkt tilboð frá belgíska 1.deildarliðinu Lommel í bakvörðinn Jonathan Hendrickx. Johnathan mun yfirgefa Breiðablik í félagaskiptaglugganum í júlí.
Þetta kemur fram á blikar.is.
Þetta kemur fram á blikar.is.
„Jonathan er mikill fagmaður og hefur verið mjög öflugur í Blikaliðinu í þeim 48 mótsleikjum sem hann hefur spilað fyrir Breiðabik til þessa frá því að hann kom til okkar fyrir keppnistímabilið 2018. Við ætlum ekki að kveðja Jonathan alveg strax þar sem hann á eftir að sýna snilli sína í næstu leikjum," segir á blikar.is.
„Tíðindamaður blikar.is veltir fyrir sér hvort Blikar munu sækja sér styrkingu í júlí-glugganum en leikmannahópur Breiðabliks er mjög breiður og sterkur og margir snjallir leikmenn hafa þurft að verma bekkinn undanfarið."
Breiðablik er á toppi Pepsi Max-deildarinnar með 16 stig, jafnmörg og ÍA sem er í öðru sæti. Blikar mæta Fylki í næstu umferð, 14. júní.