FH 5 - 3 Fjölnir
Mörk FH: Morten Beck 2, Steven Lennon 2, Björn Daníel Sverrisson.
Mörk Fjölnis: Grétar Snær Gunnarsson, Jóhann Árni Gunnarsson og Sigurður Páll Mellberg.
Mörk FH: Morten Beck 2, Steven Lennon 2, Björn Daníel Sverrisson.
Mörk Fjölnis: Grétar Snær Gunnarsson, Jóhann Árni Gunnarsson og Sigurður Páll Mellberg.
FH hafði betur gegn Fjölni þegar liðin mættust í æfingaleik í Kaplakrika núna áðan.
Emil Hallfreðsson, sem hefur verið að æfa með FH, spilaði ekki með liðinu í dag. Enn er óvíst hvort að hann spili með Fimleikafélaginu í Pepsi Max-deildinni í sumar.
Fjölnismenn, sem eru nýliðar í Pepsi Max-deildinni, komust í 2-0 en FH-ingar svöruðu því vel. Morten Beck og Steven Lennon skoruðu báðir tvö fyrir FH sem vann leikinn 5-3. Alvöru markaleikur í Kaplakrika.
Pepsi Max-deildin hefst þann 13. júní næstkomandi.
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir