Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 14:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Vigdís Lilja spáir í 8. umferð Bestu kvenna
Vigdís Lilja.
Vigdís Lilja.
Mynd: Anderlecht
Ása skorar fyrir Breiðablik.
Ása skorar fyrir Breiðablik.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
'Donni setur upp frábært leikplan eins og venjulega'
'Donni setur upp frábært leikplan eins og venjulega'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Áttunda umferðin í Bestu deild kvenna hefst í kvöld og lýkur með fjórum leikjum á morgun. Deildin er að fara aftur af stað eftir landsleikjahlé.

Vigdís Lilja Kristjánsdótir, leikmaður Anderlecht í Belgíu og U23 landsliðsins, spáir í leiki umferðarinnar.

Hún skoraði í vináttuleik U23 gegn Skotlandi fyrir viku síðan.

Hún fylgir á eftir Guðrúnu Karitas leikmanni Fylki sem var með þrjá leiki rétta þegar hún spáði í síðustu umferð.

Svona spáir Vigdís Lilja leikjunum:

Tindastóll 1 - 1 Valur (föstudagur, 18:00)
Bæði lið þurfa að ná sér í stig og leikurinn fer 1-1. Makala Woods skorar snemma, Donni setur upp frábært leikplan eins og venjulega og Tindastóll er nálægt sigri en endar 1-1 með marki frá Fanndísi.

Breiðablik 4 - 0 FHL (laugardagur, 14:00)
Blikastelpurnar taka solid 4-0 sigur, Berglind og Birta skora sitthvort markið í fyrri hálfleik og Sammy og Ása skora í seinni.

Víkingur 2 - 2 FH (laugardagur, 14:00)
Þetta verður grjótharður leikur, Víkingur þarf að komast af stað í þessu móti og gefur góðu FH-liði hörku leik. Leikurinn endar 2-2 og það verða mikil læti. Elísa skorar bæði fyrir FH og Bergdís skorar 1 og ef Selma er með þá skorar hún pottþétt.

Fram 3 - 1 Stjarnan (laugardagur, 14:00)
Fram vinnur 3-1 í mjög opnum og skemmtilegum leik, Sara Svanhildur skorar 1 og Murielle 2 og Margrét Lea skorar fyrir Stjörnuna!

Þróttur 2 - 0 Þór/KA (laugardagur, 17:00)
Þróttur heldur áfram góðu gengi og klárar þennan leik 2-0, Freyja setur bæði enda búin að vera funheit í byrjun móts.

Fyrri spámenn:
Adda Baldurs (5 réttir)
Mist Rúnarsdóttir (4 réttir)
Guðrún Karitas (3 réttir)
Katla Tryggvadóttir (3 réttir)
Gylfi Tryggvason (3 réttir)
Emelía Óskarsdóttir (3 réttir)
Ásta Eir (2 réttir)

Hér fyrir neðan má sjá stigatöfluna í Bestu deild kvenna eins og hún er akkúrat núna.
Uppbótartíminn - Nýtt lið á toppnum og mikilvægir landsleikir
Uppbótartíminn - Þurfum að vinna leikina á EM
Besta-deild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Þróttur R. 7 6 1 0 18 - 5 +13 19
2.    Breiðablik 7 5 1 1 29 - 7 +22 16
3.    FH 7 5 1 1 13 - 7 +6 16
4.    Þór/KA 7 5 0 2 15 - 11 +4 15
5.    Valur 8 2 3 3 9 - 11 -2 9
6.    Fram 7 3 0 4 8 - 16 -8 9
7.    Stjarnan 7 3 0 4 8 - 16 -8 9
8.    Tindastóll 8 2 1 5 10 - 14 -4 7
9.    Víkingur R. 7 1 1 5 10 - 18 -8 4
10.    FHL 7 0 0 7 3 - 18 -15 0
Athugasemdir
banner
banner
banner