Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
banner
   lau 06. júní 2026 14:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Allegri fær viku til að sættast við Milan
Mynd: EPA
Massimiliano Allegri var rekinn frá Milan eftir að honum mistókst að tryggja liðinu sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

Það er hins vegar ekki búið að ganga frá öllu þar sem hann krefst þess að Milan borgi sér tvær milljónir evra til að rifta samningnum og þrjár milljónir evra til aðstoðarmanna hans.

Napoli er ekki sátt með stöðu mála en félagið vill ráða ítalska stjórann.

Napoli getur það ekki fyrr en hann er endanlega laus frá Milan og félagið hefur gefið honum vikufrest til að klára sín mál.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner