Arsenal og Paris Saint-Germain, stórveldin sem mættust í úrslitaleik Meistaradeildarinnar um síðustu helgi, eru bæði í leit að nýjum vinstri kantmönnum og gætu endað á að skipta leikmönnum sín á milli.
Bradley Barcola er óánægður með að vera ekki í aðalhlutverki hjá franska stórveldinu þar sem Georgíumaðurinn Khvicha Kvaratskhelia er búinn að vera að stela sviðsljósinu á tímabilinu.
Barcola og Kvaratskhelia léku mjög svipaðan mínútufjölda á tímabilinu en Kvaratskhelia var notaður í mikilvægustu leikjunum á meðan Barcola var nýttur gegn lakari andstæðingum.
PSG er reiðubúið til að selja Barcola fyrir rétta upphæð í sumar, en franski kantmaðurinn er 23 ára gamall og með tvö ár eftir af samningi. Hann kom með beinum hætti að 20 mörkum í 49 leikjum á nýliðnu tímabili.
PSG hefur skellt 100 milljón evra verðmiða á Barcola en taldar eru góðar líkur á því að Evrópumeistararnir séu tilbúnir að selja hann fyrir lægri upphæð, jafnvel 70 til 80 milljónir.
Frakkarnir hafa mikinn áhuga á brasilíska kantmanninum Gabriel Martinelli sem er með eitt ár eftir af samningi hjá Arsenal og möguleika á auka ári.
Martinelli er 24 ára gamall og er Arsenal reiðubúið til að selja hann fyrir 50 til 60 milljónir evra.
Þessir leikmenn gætu því skipt á milli félagsliða ef Arsenal greiðir nokkra tugi milljóna á milli.
Barcola er með 19 landsleiki að baki og er partur af franska landsliðshópnum sem fer á HM.
01.06.2026 23:30
PSG setur sig í samband við Arsenal





