Fotbolti.net
06.07.17 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Charlie Taylor til Burnley (Staðfest)

Charlie í leik með Leeds.

Charlie í leik með Leeds.

Canon

Mynd: Getty Images

Burnley hefur fengið vinstri bakvörðinn Charlie Taylor í sínar raðir frá Leeds.

Taylor varð samningslaus á dögunum en hann hafnaði nýju tilboði frá Leeds. Burnley þarf að greiða uppeldisbætur þar sem hann er yngri en 24 ára.

Hinn 23 ára gamli Taylor skrifaði undir fjögurra ára samning við Burnley.
„Það er allt spennandi við ensku úrvalsdeildina. Þú ert að spila við lið eins og Chelsea og Manchester United í hverri viku og ég get ekki beðið eftir að byrja,\" sagði Taylor.

Burnley er einnig að kaupa framherjan Jonathan Walters frá Stoke en kaupverðið þar er í kringum þrjár milljónir punda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.