Fotbolti.net
06.07.17 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Iborra til Leicester (Staðfest)

Sáttur.

Sáttur.

Canon

Mynd: Getty Images

Leicester hefur keypt Vicente Iborra fyrirliða Sevilla í sínar raðir á 10,5 milljónir punda.

Iborra er 29 ára gamall miðjumaður en hann hefur þrívegis unnið Evrópudeildina með Sevilla.

Á síðasta tímabili spilaði Iborra með Sevilla þegar liðið tapaði gegn Leicester í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
„Ég er kominn á ákveðinn aldur og þá fer lestin framhjá. Ég ákvað að taka hana,\" sagði Iborra.

Iborra skoraði 30 mörk í 172 leikjum með Sevilla en hann kom til félagsins frá Levante árið 2013.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.