06.07.17 - 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Scott Malone til Huddersfield (Staðfest) - Veskið á lofti

Scott Malone er kominn til Huddersfield.

Mynd: Getty Images

Nýliðar Huddersfield ætla að gera allt sem í sínu valdi stendur til að halda sér í ensku úrvalsdeildinni. Það hefur verið nóg að gera í leikmannamálum í sumar, en núna er bakvörðurinn Scott Malone kominn til félagsins frá Fulham.
Hinn 26 ára gamli Malone hefur krotað undir þriggja ára samning við Huddersfield, en kaupverðið er ekki gefið upp.

„Við erum spenntir fyrir því að bjóða Scott velkominn til Huddersfield,\" sagði David Wagner, stjóri liðsins, í yfirlýsingu.
Það hefur eins og áður segir verið nóg að gera hjá nýliðum Huddersfield í sumar. Þeir hafa verið með veskið á lofti og fjórum sinnum hafa þeir borgað metfé fyrir leikmann í sumar.
Steve Mounie er í augnablikinu dýrasti leikmaðurinn í sögu Huddersfield, en félagið hefur einnig fengið til sín Laurent Depoitre, Aaron Mooy, Jonas Lossl, Tom Ince og Danny Williams fyrir baráttuna sem er framundan í deild þeirra bestu á Englandi.

CONFIRMED: @ScottyMalone28 completes his transfer to #htafc from @FulhamFC, signing a three year deal 📝https://t.co/MVM3lpq093 (AT) pic.twitter.com/WCkFhdk6SY
— Huddersfield Town (@htafcdotcom) July 5, 2017