Fotbolti.net
06.07.17 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Torres framlengir við Atletico (Staðfest)

Torres verður áfram í Madríd.

Torres verður áfram í Madríd.

Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Fernando Torres hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum hjá Atletico Madrid.

Þetta staðfesti félagið í gær.

Torres, sem er 33 ára gamall, er uppalinn hjá Atletico, en hann fór frá félaginu árið 2007 og samdi við enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool.
Hann var frábær hjá Liverpool og var iðinn í markaskorun. Árið 2011 gerði Chelsea hann, að dýrasti leikmanni sínum í sögunni.

Torres vill líklega ekki vera að hugsa mikið um dvölina hjá Chelsea. Hann náði sér ekki á strik og fór í kjölfarið til AC Milan.

Hann kom aftur heim til Atlético á láni árið 2015 áður en hann samdi svo við félagið ári síðar. Nú er ljóst að hann verður að minnsta kosti í eitt ár í viðbót hjá uppeldisfélaginu sínu.

„Ég er mjög ánægður að vera hér áfram í eitt ár til viðbótar,\" sagði Torres í stuttri yfirlýsingu.

Mañana arranca el equipo y tendremos el honor de contar con @Torres ¡F9T ha ampliado su contrato! #TorresRojiblanco https://t.co/9nBnimKhqp pic.twitter.com/Z6VqlyfiKW

— Atlético de Madrid (@Atleti) July 5, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.