Fotbolti.net
06.07.17 - 11:08
Magnús Már Einarsson

Veigar Páll í Víking R. á láni (Staðfest)

Veigar í leik með FH í sumar.

Veigar í leik með FH í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur R. hefur fengið Veigar Pál Gunnarsson til liðs við sig á láni frá FH. Þetta staðfesti Heimir Gunnlaugsson, varaformaður knattspyrnudeildar Víkings, í samtali við Fótbolta.net í dag.
Hinn 37 ára gamli Veigar Páll kom til FH frá Stjörnunni síðastliðið haust. Í sumar hefur Veigar einungis komið við sögu í einum leik með FH í Pepsi-deildinni og einum leik í Borgunarbikarnum.

Veigar er uppalinn Stjörnumaður en hann lék þar eftir að hann kom úr atvinnumennskunni 2013.

Í atvinnumennskunni lék hann lengst með Stabæk í Noregi og skoraði ófá mörk fyrir félagið. Hann hefur leikið 34 A-landsleiki fyrir Ísland á árunum 2001-2011 og skoraði hann sex mörk.

Veigar fær leikheimild með Víkingi þegar félagaskiptaglugginn opnar 15. júlí og hann verður því ekki með liðinu gegn ÍA á mánudaginn. Fyrsti leikur Veigars með Víkingi verður líklega sunnudaginn 16. júlí þegar Valur kemur í heimsókn í Fossvoginn.

Muhammed Mert hefur hins vegar yfirgefið herbúðir Víkings. Mert kom til Víkings í vetur en þessi framliggjandi miðjumaður lék einungis þrjá leiki í Pepsi-deildinni og olli miklum vonbrigðum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.