06.07.18 - 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spænskur landsliðsbakvörður í Real Madrid (Staðfest)

Alvaro Odriozola.

Mynd: Getty Images

Alvaro Odriozola.

Mynd: Getty Images
Real Madrid er búið að kaupa hinn 22 ára gamla hægri bakvörð Alvaro Odriozola frá Real Sociedad. Kaupverðið er ekki gefið upp en það er sagt vera 40 milljónir evra.
<i>„Real Madrid og Real Sociedad hafa komist að samkomulagi um félagaskipti leikmannsins Alvaro Odriozola,\"</i> er sagt í yfirlýsingu frá Real Madrid.

Leikmaðurinn skrifaði undir sex ára samning við Real Madrid.
Odriozola fór með Spáni á HM í Rússlandi en kom ekki við sögu. Spánn féll út í 16-liða úrslitunum gegn gestgjöfum Rússlands.
Odriozola mun berjast um hægri bakvarðarstöðuna hjá Madrídarstórveldinu við Dani Carvajal, sem einnig fór með spænska landsliðinu á Heimsmeistaramótið.
Margt bendir til þess að mikið verði um breytingar hjá Real á næsta tímabili en svo gæti farið að Cristiano Ronaldo sé á förum til Ítalíumeistara Juventus.

113 - Álvaro Odriozola completed 113 attacking crosses in La Liga last season, more than any other player in the competition. @realmadrid pic.twitter.com/EH6h3yI8zC
— OptaJose (@OptaJose) July 5, 2018