Fotbolti.net
06.07.18 - 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Þróttur V. semur við Mossi (Staðfest)

Mossi í leik með Selfossi.

Mossi í leik með Selfossi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur Vogum var að fá liðsstyrk fyrir átökin sem framundan eru í 2. deildinni í sumar.

Antonio Jose Espinosa Mossi, 31 árs gamall, hefur ákveðið að taka slaginn með Þrótturum.
Mossi, sem er spænskur miðjumaður, yfirgaf Selfoss í síðasta mánuði. Samningi við hann var rift eftir að hann gekk af velli í 5-3 tapi gegn Haukum. Hann neitaði að spila áfram í stöðunni 2-0.

Nú er hann búinn að finna sér nýtt lið og mun hann spila í Vogum það sem eftir er af þessu tímabili. Þróttur V. er í þriðja sæti 2. deildar með 18 stig úr níu leikjum. Þetta er frábær árangur þar sem Þróttarar eru nýliðar í deildinni.

Mossi, sem spilaði Víkingi Ólafsvík 2013 og 2014, verður löglegur með Þrótti þegar félagaskiptaglugginn opnar 15. júlí.
Þróttur V. semur við Mossi (Staðfest)
Canon

Mynd: Þróttur V.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.