KR hafði betur gegn ÍBV er liðin mættust í Pepsi Max-deildinni fyrr í dag. Það var gott veður og verið að fagna Goslokahátíð en lærisveinar Rúnars Kristinssonar gerðu sér lítið fyrir og hirtu öll stigin.
„Þó við viljum gjarnan geta hjálpað Eyjamönnum þá verðum við að hugsa um okkur sjálfa," sagði Rúnar er slegið var á létta strengi í upphafi viðtals.
Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og löngum boltum. Rúnar segir það ekki að furða enda hafi heimamenn hvorki slegið né bleytt völlinn fyrir leik.
„Völlurinn bauð ekki uppá annað. Þegar menn slá ekki völlinn fyrir leik þá verðum við bara að mæta sterkir og svara því. Við komum hingað vitandi að völlurinn yrði eins og hann var og bjuggumst bara við baráttu."
Rúnar var spurður út í framhaldið hjá KR og telur hann líkur á því að einhverjum leikmönnum verði bætt við hópinn í sumarglugganum.
Athugasemdir