Fotbolti.net
06.07.26 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Anderson gengið í gegnum mikla sorg: Flóttaleið að komast út á völlinn

Elliot Anderson í leik með enska liðinu

Elliot Anderson í leik með enska liðinu

Canon

Mynd: EPA

Elliot Anderson, leikmaður enska landsliðsins sem nýlega var keyptur til Manchester City, opnaði sig um móðurmissinn í viðtali við The Athletic.

Anderson missti móður sína í apríl en hún hafði glímt við erfið veikindi. Hann missti af Evrópuleik með Nottingham Forest þar sem hann var að syrgja.
„Þetta er tilfinningaríkt og margt sem flýgur í gegnum hugann. Mín flóttaleið er að komast út á völlinn. Það frelsar hugann," segir Anderson.

„Hún (Helen móðir hans) hefði verið mjög stolt. Hún væri hérna útii að syngja með fjölskyldu minni og syngja með okkur eftir leiki. En já... ég er stoltur."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.