Fotbolti.net
06.07.26 - 14:32
Kári Snorrason

Belgar áfrýja niðurfellingunni

Markahæsti leikmaður Bandaríkjanna á mótinu.

Markahæsti leikmaður Bandaríkjanna á mótinu.

Canon

Mynd: EPA

Belgar hafa áfrýjað ákvörðun FIFA um niðurfellingu á leikbanni Folarin Balogun, leikmanni Bandaríkjanna.

Liðin mætast á miðnætti í 16-liða úrslitum og þarf úrskurðarnefnd FIFA því að hafa hraðar hendur.

Í yfirlýsingu frá belgíska fótboltasambandinu segir það ekki hafa fengið neinar skýringar frá FIFA og því hefur Belgía engan annan kost en að áfrýja.
Belgar með harðorða yfirlýsingu gegn FIFA
TENGT EFNI

Belgar með harðorða yfirlýsingu gegn FIFA

Balogun fékk beint rautt spjald í sigri Bandaríkjanna gegn Bosníu og Hersegóvínu í 32-liða úrslitum og ætti því að vera í leikbanni gegn Belgíu.

Leikbannið var fellt niður eftir afskipti frá Hvíta húsinu en Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði samband við Gianni Infantino, forseta FIFA, til að ræða um bannið.

Ákvörðun FIFA hefur verið vægast sagt umdeild og hefur Belgía og UEFA meðal annars gagnrýnt afturköllunina harðlega.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.