Líklega á förum frá ÍBV

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Marcel Zapytowski (2001) gæti samkvæmt heimildum Fótbolta.net farið frá ÍBV í glugganum sem opnar eftir tíu daga. Pólski markvörðurinn átti mjög gott tímabil í fyrra en eftir fyrstu fjóra leikina á þessu tímabili hefur hann ekki komið við sögu.
Það kom fram í Innkastinu í síðustu viku að Marcel hefði verið boðinn í önnur félög. Hann er ekki sáttur við sitt hlutverk, vill ekki vera varamaður og eru líkur á því að hann fari í glugganum.

Hann hefur þrívegis verið utan hóps, fyrst var það eftir að hann fékk flís í augað og á laugardag var hann í Póllandi vegna persónulegra ástæðna.
Sú ákvörðun Aleksandar Linta að taka Marcel úr liðinu vakti athygli eftir tímabilið hjá Marcel í fyrra. Ari í Haraldsstovu Petersen (2002) hefur staðið vaktina hjá ÍBV en hann er lánsmaður frá KÍ Klaksvík í Færeyjum. Hann fékk lof fyrir frammistöðu sína gegn FH og hélt svo hreinu gegn Val á laugardag.
ÍBV hefur fengið fjórtán stig úr síðustu sex leikjum eftir mjög erfiða byrjun.