Fotbolti.net
06.07.26 - 13:17
Elvar Geir Magnússon

Henderson þarf í aðgerð eftir skiltahoppið misheppnaða

Jordan Henderson og Jude Bellingham fara yfir málin.

Jordan Henderson og Jude Bellingham fara yfir málin.

Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn reynslumikli Jordan Henderson mun ekki koma frekar við sögu á HM en hann meiddist illa á úlnlið eftir sigur Englands gegn Mexíkó.

Hann var að hoppa yfir auglýsingaskilti þegar hann rann eitthvað til og lenti illa með þeim afleiðingum að hann var fluttur á sjúkrahús og þarf að gangast undir aðgerð. Hann ferðaðist ekki með liðinu aftur í bækistöðvar þess heldur varð eftir á sjúkrahúsinu í Mexíkó.

Óhappið átti sér stað eftir að enska liðið hafði sungið Wonderwall með fólkinu í stúkunni.

Henderson, sem er 36 ára leikmaður Brentford, hefur aðeins spilað sex mínútur á HM og það var gegn Panama.
Henderson á sjúkrahús eftir fagnaðarlætin
TENGT EFNI

Henderson á sjúkrahús eftir fagnaðarlætin

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.