Ari Leifsson mun samkvæmt heimildum Fótbolta.net ganga í raðir Vals þegar sumarglugginn hér á Íslandi um miðjan júlímánuð.
Ari er að renna út á samningi hjá Kolding og mun hann í kjölfarið halda á Hlíðarenda. Ari er miðvörður, fæddur 1998, og hefur leikið erlendis frá því að tímabilinu 2019 lauk. Hann er uppalinn hjá Fylki, lék svo með Strömsgodset í Noregi út 2023 og hefur verið hjá Kolding í Danmörku síðan.

Hann var sterklega orðaður við Val fyrir tímabilið og benti margt til þess að hann kæm til Vals á þeim tímapunkti. Þá varð þjálfarabreyting hjá Kolding og eftir marga mánuði án fótbolta var Ari kominn í liðið í Danmörku og tók þátt í þremur leikjum í röð í apríl. En hann hefur ekkert spilað í síðustu fimm leikjum.
Kolding á tvo leiki eftir af tímabilinu og mun enda í 6. sæti dönsku B-deildarinnar.