Haraldur Freyr: Vantaði bara að skora mörk

Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík tók á móti Fram í lokaleik 13. umferðar Bestu deild karla sem fram fór á HS Orku vellinum í kvöld.
Keflavík hafa verið að sækja sterk stig að undanförnu og náðu með stiginu í kvöld að lyfta sér upp í efri hluta deildarinnar.
„Fyrri hálfleikurinn er góður af okkar hálfu, við sköpum mikið af upphlaupum og sénsum til þess að skora" sagði Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur eftir jafnteflið í kvöld.
„Svo er seinni hálfleikurinn kannski svolítið bara í járnum þangað til að þeir fá fast leikatriði og skora upp úr því. Við vorum sofandi á verðinum"
„Við svöruðum því svo sem ágætlega og ég held að jafntefli sé kannski bara sanngjarnt"
Hvað var það sem vantaði upp á hér í kvöld?
„Vantaði bara að skora mörk. Við fáum í fyrri hálfleik þrjá frábæra sénsa til þess að skora en nýtum það ekki og ég held að það sé svona það helsta sem vantaði upp á"
Keflavík náðu með jafnteflinu í kvöld að lyfta sér upp í efri helming deildarinnar.
„Við hugsum bara um einn leik í einu og svo sjáum við bara hvernig þetta kemur í lokin"
Keflavík vann KR í síðustu umferð og fékk stig gegn Fram í kvöld sem gefur góð fyrirheit fyrir framhaldið.
„Það er alltaf gott að vinna fótboltaleiki og næst best er að taka stig. Við þurfum bara að halda áfram og eigum Blikana næst innfrá og vonandi getum við farið þangað og strítt þeim" sagði Haraldur Freyr Guðmundsson.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 14 | +39 | 40 |
| 2 | KR | 14 | +14 | 29 |
| 3 | Fram | 13 | +7 | 27 |
| 4 | Breiðablik | 13 | +7 | 22 |
| 5 | Valur | 14 | -3 | 19 |
| 6 | Keflavík | 13 | -6 | 16 |
| 7 | Stjarnan | 14 | -3 | 15 |
| 8 | ÍBV | 13 | -4 | 15 |
| 9 | ÍA | 13 | -8 | 15 |
| 10 | KA | 13 | -9 | 10 |
| 11 | FH | 13 | -13 | 8 |
| 12 | Þór | 13 | -21 | 8 |


