Fotbolti.net
06.07.26 - 20:26
Brynjar Ingi Erluson

Íhuga að áfrýja rauða spjaldinu hjá Quansah eftir Balogun-fíaskóið

Íhuga að áfrýja rauða spjaldinu hjá Quansah eftir Balogun-fíaskóið
Canon

Mynd: EPA

Enska fótboltasambandið er alvarlega að íhuga að áfrýja rauða spjaldinu sem Jarell Quansah fékk í 3-2 sigri Englands á Mexíkó í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins.
Trump dásamar Infantino og viðurkennir að hafa haft afskipti
TENGT EFNI

Trump dásamar Infantino og viðurkennir að hafa haft afskipti

Quansah fékk rautt spjald í byrjun síðari hálfleiks gegn Mexíkó þegar hann fór í groddalega tæklingu. Hann vann boltann, en fylgdi á eftir með takkana á undan.

Times segir enska fótboltasambandið alvarlega íhuga að áfrýja spjaldinu í þeirri von að Quansah geti verið með gegn Noregi í 8-liða úrslitum.

FIFA heimilaði bandaríska framherjanum Folarin Balogun að spila gegn Belgíu í 16-liða úrslitum, þrátt fyrir að hann hefði fengið rautt spjald í 32-liða úrslitum gegn Bosníu og Hersegóvínu.

Mikið hefur verið rætt og ritað um það mál, en Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ræddi við Gianni Infantino, forseta FIFA, vegna rauða spjaldsins og fékk því framgengt að Balogun mætti spila gegn Belgíu.

Trump segir sjálfur að honum hafi ekki fundist Balogun verðskulda rautt spjald og að allir bestu leikmennirnir ættu að fá að spila leikinn. Hann sagði jafnframt að dómarinn sem rak Balogun af velli ætti sér vafasama fortíð í dómgæslu.

Það verður því fróðlegt að sjá hvort enska sambandið reyni að fara sömu leið. Spurning hvort Karl Bretakonungur heyri í Infantino á næstu dögum og reyni að sannfæra hann um að draga rauða spjaldið hjá Quansah til baka.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.