Fotbolti.net
06.07.26 - 18:09
Kári Snorrason

„Þurfum að vera viðbúnir öllu“

Ræðir einvígið.

Ræðir einvígið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur mætir ungversku meisturunum í Györ í fyrstu umferðar forkeppni Meistaradeildar Evrópu á Víkingsvelli annað kvöld.

Mikið er í húfi því með sigri í einvíginu tryggir Víkingur sér sæti í annarri umferð forkeppni Meistaradeildarinnar og þar með að lágmarki úrslitaeinvígi um sæti í Sambandsdeildinni.

Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, um einvígið gegn Ungverjunum.
Víkingur aldrei verið sterkari samkvæmt landsliðsþjálfaranum - Ungverskir miðlar fjalla um einvígið
TENGT EFNI

Víkingur aldrei verið sterkari samkvæmt landsliðsþjálfaranum - Ungverskir miðlar fjalla um einvígið

Erfiðara að lesa í Ungverjana eftir stjóraskipti
„Við erum búnir að skoða þá og greina. Við komumst yfir upptökur úr æfingaleikjum hjá þeim og höfum geta greint þá. Við gerum okkur hugmynd um hvernig þeir vilja spila,“ segir Sölvi.

Hann segir þó erfiðara að rýna í ungverska liðið en stjóraskipti urðu hjá liðinu eftir tímabil í vor. Balázs Borbély, sem stýrði Györ til síns fyrsta meistaratitli í 13 ár, yfirgaf félagið til þess að taka við keppinautum þeirra í Ferencvaros.

„Það er svolítið erfitt að horfa í hvað þeir gerðu á síðasta ári með tilkomu nýs þjálfara. Við þurfum að vera viðbúnir öllu. Þetta er hörkulið, þeir sýndu það á síðasta ári með því að vinna ungversku deildina. Þeir steyptu þar stórlið Ferencvaros af stóli, sem hefur einokað deildina í Ungverjalandi síðustu ár. Þetta er andstæðingur sem við berum mikla virðingu fyrir.“

„Við teljum við okkur hafa góða hugmynd um hvernig þeir ætla að spila á móti okkur eftir að hafa séð þessa leiki. Ég leyfi mér að efast um að þeir ætli að spila þessi kerfi án þess að nota þau í leiknum,“
segir Sölvi og heldur áfram.

„Það sem mestu máli skiptir er að við hugsum um okkur og náum upp sama 'standard' og við erum búnir að sýna, jafnvel bæta í það. Þetta er komið á allt annað stig í Evrópu núna - minna sem má fara úrskeiðis án þess að okkur verði refsað. Við vitum það og höfum reynslu af því. Við verðum að vera klárir, hugsa fyrst og fremst um okkur sjálfa.“

Endurheimta markaskorara frá HM
Þeir ungversku endurheimta mann frá heimsmeistaramótinu í Nadhir Benbouali, sem var í landsliðshópi Alsír.

Benbouali, sem er 26 ára framherji, spilaði aðeins 45 mínútur á mótinu en nýtti þær vel og skoraði jöfnunarmark Alsíringa gegn Jordaníu.

„Þetta er hörkuframherji sem er þarna. Hann er í hópnum hjá þeim en ég veit ekki hvort hann spili eða ekki. En eins og ég segi þá þurfum við að einbeita að okkur sjálfum og ekki vera að spá of mikið í hvort hann spili eða ekki. Það verður bara gaman fyrir okkar leikmenn að spila á móti sterkum andstæðingum og máta sig við þá,“ sagði Sölvi.

Óskar Borgþórsson, leikmaður Víkings, gantaðist með það í útvarpsþættinum Fótbolti.net fyrir nokkrum vikum að Víkingar héldu allir með Alsír á HM og vonuðust því að Györ yrði án framherjans.

Víkingar halda með Alsír á HM
TENGT EFNI

Víkingar halda með Alsír á HM


Barátta um boltann
Sölvi segir bæði lið vera með álíka áherslur og býst hann við miklum baráttuleik. „Ég held að þetta verði mikil barátta um að ná stjórn á leiknum. Bæði lið vilja pressa og ná stjórn á leiknum. Við þurfum að vera hugrakkir að halda í boltann.“

„Þó svo að það gangi kannski ekki upp í byrjun að þá þurfum við að vinna okkur inn í leikinn. Við þurfum að halda þeim frá sínum styrkleikum - þeir eru góðir í að halda í boltann og teygja á liðum ef þeir fá tíma.“


Ítarlegri greining á andstæðingunum
Aðspurður um hver helsti munurinn sé á Evrópu- og deildarleikjum segir Sölvi aðdragandann helstu breytinguna.

„Við reynum alltaf að gera eins vel og við getum. Auðvitað þurfum við að aðlaga okkur að andstæðingnum. Við leggjum kannski meiri áherslu á að fara yfir andstæðinginn. Á Íslandi er maður búinn að mæta þessum liðum, þekkir leikmennina og veist við hverju þú mátt búast. Í Evrópuleikjunum veistu minna og þá þarf að fara nánar yfir andstæðinginn. Þá eru kannski tveir fundir: sóknar- og varnarfundur, í staðinn fyrir einn fund eins og við gerum kannski fyrir deildarleiki.“

Náð góðum úrslitum í Víkinni í samvinnu við stuðningsmenn
Sölvi segir það sterkt að hefja einvígið á heimavelli en seinni leikurinn fer fram í Györ í Ungverjalandi á þriðjudag eftir viku.

„Við höfum verið sterkir á heimavelli í gegnum árin. Náð í mjög góð úrslit á móti stórum andstæðingum. Það gerum við í samvinnu við okkar frábæru stuðningsmenn. Þeir koma og heldur betur hjálpa okkur. Það sést hversu öflugir og mikilvægir þeir eru þegar við lítum yfir úrslit síðustu ára á heimavelli,“ segir Sölvi að lokum.
Flautað til leiks klukkan 19:00 í Víkinni á morgun.

Flautað til leiks klukkan 19:00 í Víkinni á morgun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurvegari einvígisins fer að minnsta kosti í úrslitaleik um sæti í Sambandsdeildinni.

Sigurvegari einvígisins fer að minnsta kosti í úrslitaleik um sæti í Sambandsdeildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Snær meiddist gegn KA og verður ekki með á morgun.

Aron Snær meiddist gegn KA og verður ekki með á morgun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miklar breytingar hjá Györ síðustu misseri.

Miklar breytingar hjá Györ síðustu misseri.

Canon

Mynd: EPA

Benbouali skoraði á HM.

Benbouali skoraði á HM.

Canon

Mynd: EPA

Sölvi og Óskar léttir.

Sölvi og Óskar léttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Elís hefur komið að sex mörkum í síðustu þremur leikjum.

Aron Elís hefur komið að sex mörkum í síðustu þremur leikjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar unnu 3-0 sigur á Bröndby á Víkingsvelli í fyrra.

Víkingar unnu 3-0 sigur á Bröndby á Víkingsvelli í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Sést hversu öflugir og mikilvægir þeir eru þegar við lítum yfir úrslit síðustu ára á heimavelli.“

„Sést hversu öflugir og mikilvægir þeir eru þegar við lítum yfir úrslit síðustu ára á heimavelli.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.