Fotbolti.net
06.07.26 - 19:14
Brynjar Ingi Erluson

Chelsea mun hlusta á tilboð í Garnacho

Chelsea mun hlusta á tilboð í Garnacho
Canon

Mynd: EPA

Enska félagið Chelsea er sagt opið fyrir því að selja argentínska vængmanninn Alejandro Garnacho í sumar.
Garnacho kom til Chelsea frá Manchester United á síðasta ári, en náði engan veginn að festa sig í sessi í Lundúnum þrátt fyrir að spila 43 leiki.

Hann lék undir þremur stjórum á þessu eina tímabili, en tókst ekki að vinna sér inn fast sæti í byrjunarliðinu hjá neinum þeirra.

Football.London hefur heimildir fyrir því að Chelsea sé opið fyrir því að selja Garnacho, sem er 22 ára gamall og samningsbundinn félaginu til ársins 2032.

Ítalska félagið Roma er sagt hafa áhuga á Garnacho og skoðar þann möguleika að fá hann á láni. Chelsea vill hins vegar frekar selja leikmanninn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.