HM: Merino skaut Evrópumeisturunum áfram - Síðasti dansinn hjá Ronaldo

Merino kom Spánverjum áfram

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo og félagar eru úr leik. Þetta var líklega síðasti landsleikur Ronaldo á ferlinum.

Mynd: EPA

Nuno Mendes meiddist snemma í síðari hálfleik

Mynd: EPA

Merino kom Spánverjum áfram

Mynd: EPA
Portúgal 0 - 1 Spánn
0-1 Mikel Merino ('90 )
0-1 Mikel Merino ('90 )
Evrópumeistarar Spánar eru komnir í 8-liða úrslit HM eftir dramatískan 1-0 sigur á Portúgal í kvöld. Cristiano Ronaldo hefur því líklega spilað sinn síðasta leik á heimsmeistaramóti og mögulega sinn síðasta landsleik fyrir Portúgal.
Leikurinn var stál í stál frá upphafi og lítið um dauðafæri.
Besta færi leiksins kom snemma þegar Dani Olmo sendi boltann inn fyrir á Mikel Oyarzabal, sem var ekki rangstæður og slapp einn í gegn. Hann setti skotið hins vegar rétt framhjá stönginni hægra megin.
Ronaldo átti næst skot sem Unai Simon varði vel í marki Spánverja.
Diogo Costa, markvörður Portúgals, hélt áfram að eiga frábært mót og varði tvisvar glæsilega í sömu sókninni. Hann sá fyrst við Lamine Yamal og varði síðan enn betur frá Alex Baena hinum megin í teignum.
Á 38. mínútu fengu Portúgalir ágætt tækifæri. Joao Felix keyrði upp vinstra megin og átti skot sem fór upp í loftið og til Ronaldo. Hann náði þó ekki nægum krafti í skotið og Simon kastaði sér á eftir boltanum og handsamaði hann.
Nuno Mendes komst næst því að skora fyrir Portúgal undir lok fyrri hálfleiks þegar skot hans af um tuttugu metra færi fór af Pedro Porro og í þverslána.
Fyrri hálfleikurinn var ágætis skemmtun, en sá síðari náði ekki alveg sömu hæðum.
Ronaldo snerti boltann aðeins tólf sinnum í fyrri hálfleik, fæst allra leikmanna á vellinum. Oyarzabal kom næstur með 21 snertingu.
Margir biðu eftir einvígi Nuno Mendes og Lamine Yamal, sem er hægt og rólega að verða að sígildu einvígi. Því lauk þó snemma í síðari hálfleik þegar Mendes fór meiddur af velli. Það var mikið högg fyrir Portúgal enda hefur Mendes verið einn besti leikmaður liðsins á síðustu árum.
Spánn var meira með boltann og líklegri til að skora, en náði ekki alveg að nýta stöðurnar nógu vel. Spánverjar voru farnir að banka á dyrnar fyrir seinni vatnspásuna, en leikurinn róaðist aðeins eftir hana.
Mikel Merino kom inn af bekknum hjá Spáni og skoraði sigurmarkið þegar uppbótartíminn var hafinn eftir klaufalegan varnarleik Portúgala.
Ferran Torres var þá með boltann, dró Ruben Dias út á móti sér og náði að lauma sendingu inn á Merino, sem lagði boltann undir Diogo Costa og í netið.
Varnarleikur Portúgals var mjög undarlegur í markinu og enginn var mættur fyrir aftan Dias til að taka á móti hlaupinu hjá Merino.
Portúgal reyndi að knýja fram jöfnunarmark á lokamínútunum og fékk tvo skalla sem fóru rétt framhjá markinu, en nær komst liðið ekki.
Þar með er síðasta heimsmeistaramóti Ronaldo lokið. Hann hefur líklega spilað sinn síðasta leik á stórmóti og mögulega sinn síðasta landsleik fyrir Portúgal.
Spánn mætir Bandaríkjunum eða Belgíu í 8-liða úrslitum.