Fotbolti.net
23.08.26 - 21:48
Brynjar Ingi Erluson

Spánn: Meistararnir skoruðu fimm í fyrsta leik - Baulað á Alvarez

Spánn: Meistararnir skoruðu fimm í fyrsta leik - Baulað á Alvarez
Canon

Mynd: EPA

Spánarmeistarar Barcelona unnu magnaðan 5-0 sigur á Elche í 2. umferð La Liga á Spáni í kvöld.
Barcelona var mun líflegra liðið gegn Elche og Raphinha kom Börsungum yfir úr vítaspyrnu á 14. mínútu. Brasilíumaðurinn fagnaði síðan að hætti teiknimyndahetjunnar Spider-Man.

Karim Adeyemi, sem kom til Barcelona frá Borussia Dortmund í sumar, skoraði annað markið undir lok fyrri hálfleiks. Hann afgreiddi boltann snyrtilega í netið eftir sendingu frá Raphinha og fagnaði því marki í fyrsta keppnisleik sínum fyrir félagið.

Anthony Gordon kom inn á fyrir Lamine Yamal á 65. mínútu og lét strax að sér kveða. Hann lagði fyrst upp annað mark Raphinha og síðan fjórða markið fyrir Fermín Lopez.

Fermín skoraði sitt annað mark á 79. mínútu eftir sendingu frá hinum unga og efnilega Xavi Espart og innsiglaði 5-0 stórsigur Barcelona.

Glæsileg byrjun hjá Börsungum en þetta gæti orðið langur vetur hjá Elche. Þetta var fyrsti leikur Barcelona á tímabilinu en leik liðsins í 1. umferð var frestað þar sem margir leikmenn voru nýkomnir til baka eftir heimsmeistaramótið.

Atlético Madríd og Villarreal gerðu á meðan 2-2 jafntefli á Metropolitano-leikvanginum í Madríd.

Marc Pubill kom Atlético yfir á 59. mínútu með frábæru skoti fyrir utan vítateig en Gerard Moreno jafnaði úr vítaspyrnu.

Andrúmsloftið á vellinum breyttist þegar Julian Alvarez kom inn á sem varamaður á 66. mínútu. Hann hefur farið fram á að verða seldur til Barcelona og er sagður afar ósáttur við að fá ekki sínu framgengt.

Stuðningsmenn Atlético bauluðu hátt þegar Alvarez kom inn á og staðan versnaði síðan enn frekar fyrir heimamenn.

Georges Mikautadze kom Villarreal yfir úr annarri vítaspyrnu liðsins á 78. mínútu. Robin Le Normand réð ekkert við hraða Georgíumannsins, elti hann inn í teiginn og hrinti honum augljóslega þegar hann var að munda skotfótinn.

Heilalaust brot hjá Le Normand sem fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt. Atlético var því manni færri og komið undir.

Heimamenn gáfust þó ekki upp. Þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma slapp Giuliano Simeone inn fyrir vörn Villarreal og renndi boltanum undir markvörðinn og í netið.

Lokatölur urðu 2-2. Atlético er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leiki sína en Villarreal með tvö.

Atlético Madrid 2 - 2 Villarreal
1-0 Marc Pubill ('59 )
1-1 Gerard Moreno ('66 , víti)
1-2 Georges Mikautadze ('78 , víti)
2-2 Giuliano Simeone ('85 )
Rautt spjald: Robin Le Normand, Atletico Madrid ('76)

Elche 0 - 5 Barcelona
0-1 Raphinha ('14 , víti)
0-2 Karim Adeyemi ('45 )
0-3 Raphinha ('67 )
0-4 Fermin Lopez ('71 )
0-5 Fermin Lopez ('79 )

Getafe 1 - 0 Racing Santander
0-0 Andres Martin ('77 , Misnotað víti)
1-0 Enes Unal ('81 )
Giuliano Simeone bjargaði stigi fyrir tíu leikmenn Atlético

Giuliano Simeone bjargaði stigi fyrir tíu leikmenn Atlético

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Sevilla2+36
1Real Sociedad2+46
2Alaves2+34
2Barcelona2+46
3Atletico Madrid2+24
3Atletico Madrid2+44
4Barcelona1+53
4Girona2+14
5Espanyol2+23
5Levante2+14
6Real Madrid1+33
6Real Madrid1+13
7Betis1+13
7Eibar1+13
8Getafe2-23
8Leganes1+13
9Valencia1+13
9Villarreal202
10Betis2-13
10Deportivo101
11Celta101
11Espanyol101
12Valencia101
12Sevilla101
13Racing Santander2-11
13Athletic101
14Vallecano2-11
14Getafe101
15Elche2-51
15Deportivo2-31
16Osasuna000
16Celta2-20
17Mallorca38-1042
17Malaga2-20
17Real Sociedad1-10
18Athletic1-20
18Alaves2-30
19Girona38-1641
19Malaga1-20
19Villarreal2-40
20Las Palmas2-50
20Levante1-30
20Oviedo38-3429
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.