Fotbolti.net
06.08.16 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Gustavo Gomez til AC Milan (Staðfest)

Gustavo Gomez til AC Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Paragvæski miðvörðurinn Gustavo Gomez er búinn að skrifa undir fimm ára samning við AC Milan.

Gomez kemur til félagsins fyrir 7 milljónir evra frá argentínska félaginu Lanus.
Hjá Lanus var Gomez í lykilhlutverki þegar félagið vann argentínsku deildina í vor.

„Gustavo Gomez er búinn að skrifa undir samning til 30. júní 2021. Við viljum bjóða hann velkominn til félagsins,\" stendur á vefsíðu AC Milan.

„Gomez er ríkjandi Argentínumeistari með Lanus og var í leikmannahópi Paragvæ á Copa America.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.