06.08.16 - 10:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Marlos Moreno til Manchester City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, heldur áfram að styrkja leikmannahóp sinn fyrir komandi tímabil. City staðfesti í dag kaup á kólumbíska sóknarmanninum Marlos Moreno.
Moreno sem er 19 ára gamall kemur frá Atletico Nacional í heimalandinu og nemur kaupverðið um 4,75 milljónum punda.

Hann verður lánaður í burtu frá félaginu út þessa leiktíð og fer til Spánar, nánar tiltekið Deportivo La Coruna.
Moreno er þriðji leikmaðurinn sem Guardiola klófestir í þessari viku, en áður hafði hann fjárfest í Leroy Sane frá Schalke og Gabriel Jesus frá Palmeiras.
„Pep Guardiola er einn besti þjálfari heims. Ég held að hann kunni vel að meta unga leikmenn og hann getur bætt unga leikmenn á mörgum sviðum,\" sagði Moreno í samtali við heimasíðu Man City.
„Ég held að það verði frábært að vinna með honum og vera hluti af liðinu hans.\"
Guardiola er ekki hættur á leikmannamarkanum, en hann hefur lengi verið á eftir John Stones, varnarmanni Everton. Hann vonast til þess að klára kaupin á honum á næstu dögum.

Heimild: BBC