06.08.16 - 19:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Schmeichel búinn að skrifa undir hjá Leicester (Staðfest)

Kasper Schmeichel verður áfram hjá Leicester næstu árin

Mynd: Getty Images

Markvörðurinn Kasper Schmeichel er búinn að skrifa undir nýjan fimm ára samning við Englandsmeistara Leicester City.
Hinn 29 ára gamli Schmeichel hefur spilað 220 leiki fyrir Leicester síðan hann kom til félagsins frá Leeds United árið 2011. Hann spilaði meðal hverja einustu mínútu þegar liðið varð Englandsmeistari í fyrsta sinn á síðasta leiktímabili.
„Ég er allur á iði og get vart beðið eftir því að tímabilið byrji. Þetta var mjög auðvelt ákvörðun,\" sagði Schmeichel í samtali við heimasíðu Leicester.
„Þetta snerist um það að koma aftur eftir að hafa unnið ensku úrvalsdeildina og gæta þess að hungrið sé það sama, bæði hjá mér og hópnum öllum. Ég hef komið aftur til baka fullkomnlega sannfærður um það að þetta sé staðurinn fyrir mig til að vera á.\"
„Við höfum tekið nokkur risastór skref og alveg síðan ég kom hingað þá hefur þetta verið frábært. Ég hef elskað það að vera hérna frá fyrstu mínútu.\"
Nýji samningurinn gildir til ársins 2021.
Kasper er sonur Peter Schmeichel, sem var markvörður Manchester United, á sínum tíma. Kasper kom í gegnum akademíuna hjá nágrönnum í Man City og spilaði með liðum eins og Darlington, Bury, Falkirk, Cardiff City, Coventry City og Notts County áður en hann fór til Leeds.

Heimild: Sky Sports