Fotbolti.net
06.08.17 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jermain Lens til Besiktas (Staðfest)

Lens fann sig aldrei hjá Sunderland.

Lens fann sig aldrei hjá Sunderland.

Canon

Mynd: Getty Images

Hinn hollenski Jermain Lens hefur yfirgefið Sunderland og gengið í raðir tyrkneska liðsins Besiktas.

Hinn 29 ára gamli Lens fann sig aldrei hjá Sunderland.

Hann kom til Sunderland frá Dynamo Kiyv árið 2015 fyrir 11 milljónir punda, en fyrsta tímabil hans fór ekki að óskum.
Hann var lánaður til Fenerbache, sem eru keppinautar Besiktas í Tyrklandi, á síðasta tímabili og þar skoraði hann fimm mörk í 33 leikjum. Hann er nú farinn aftur til Tyrklands, núna fyrir fullt og allt.

Tali er að kaupverðið sé í kringum 4,5 milljónir punda.

Besiktas hefur fengið til sín nokkra þekkta leikmenn í sumar. Alvaro Negredo og Pepe eru þar á meðal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.