Fotbolti.net
06.08.18 - 20:03
Ívan Guðjón Baldursson

Andri Lucas Guðjohnsen til Real Madrid (Staðfest)

Andri Lucas Guðjohnsen til Real Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Diario AS

Andri Lucas Guðjohnsen er búinn að skrifa undir samning við spænska félagið Real Madrid.
Andri er 16 ára gamall sonur Eiðs Smára sem gerði garðinn frægan hjá Chelsea og Barcelona.

Andri hefur verið að spila fyrir unglingalið Espanyol að undanförnu og er fyrirliði U17 ára landsliðsins.

Daniel Tristan Guðjohnsen, yngri bróðir Andra, er einnig að æfa með yngri flokkum Real Madrid.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.