06.08.18 - 14:30
Brynjar Ingi Erluson
Axel Tuanzebe lánaður til Aston Villa (Staðfest)

Axel Tuanzebe í baráttunni með Manchester United

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United lánaði í dag enska varnarmanninn Axel Tuanzebe til Aston Villa út leiktíðina.
Tuanzebe, sem er 20 ára gamall, hefur átt í erfiðleikum með að brjóta sér leið inn í lið United en hann á aðeins átta leiki að baki með aðalliðinu.
Hann var lánaður síðari hluta síðasta tímabils til Aston Villa en lék þó aðeins fimm leiki í B-deildinni.
Tuanzebe er nú kominn aftur til Aston VIlla en hann verður hjá félaginu út tímabilið.
Hann er mikill styrkur fyrir Villa sem var nálægt því að komast upp í úrvalsdeildina en liðið tapaði í úrslitaleik umspilsins gegn Fulham.