Fotbolti.net
06.08.18 - 14:00
Brynjar Ingi Erluson

Axel Witsel til Borussia Dortmund (Staðfest)

Axel Witsel samdi við Borussia Dortmund í dag

Axel Witsel samdi við Borussia Dortmund í dag

Canon

Mynd: Getty Images

Þýska félagið Borussia Dortmund staðfesti í dag kaup á belgíska miðjumanninum Axel Witsel en hann kemur frá kínverska félaginu Tianjian Quanjian.
Witsel, sem er 29 ára gamall, hefur átt undarlegan feril miðað við fastamann í belgíska landsliðinu.

Hann byrjaði ferilinn með Standard Liege í Belgíu áður en hann samdi við portúgalska félagið Benfica. Hann lék eitt tíma í Portúgal áður en rússneska félagið Zenit St. Pétursborg keypti hann.

Hann lék með liðinu til 2016 áður en hann hélt til Kína. Eftir að hafa spilað þar í tvö ár er hann kominn í eitt af stærstu félögum Evrópu, Borussia Dortmund.

Hann gerði fjögurra ára samning við Dortmund en hann mun þéna um það bil 10 milljónir evra á ári.

Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir Dortmund en félagið vonast til þess að veita Bayern München samkeppni í þýsku deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.