Fotbolti.net
06.08.19 - 15:02
Elvar Geir Magnússon

Átján ára Portúgali til West Ham (Staðfest)

Goncalo Cardoso.

Goncalo Cardoso.

Canon

Mynd: Getty Images

Goncalo Cardoso, miðvörður hjá Boavista, fór í læknisskoðun hjá West Ham í morgun og skrifaði svo undir samning við félagið.

Um er að ræða átján ára miðvörð sem spilar fyrir portúgalska U19 landsliðið.

Manuel Pellegrini er að horfa til framtíðar með þessum kaupum en telur hann þó geta barist um byrjunarliðssæti á þessari leiktíð.

Cardoso kostar um 2,75 milljónir punda og gerir fimm ára samning.
Fyrr í sumar fékk West Ham til sín franska sóknarmanninn Sebastien Haller á metfé, 45 milljónir punda.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.