Fotbolti.net
06.08.19 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Bristol City tókst að landa Massengo frá Mónakó (Staðfest)

Massengo í baráttu við Stefan Savic á Wanda Metropolitano leikvanginum.

Massengo í baráttu við Stefan Savic á Wanda Metropolitano leikvanginum.

Canon

Mynd: Getty Images

Championship félagið Bristol City var að bæta við sig ungum og efnilegum Frakka.
Han-Noah Massengo er 18 ára gamall og kemur frá Mónakó fyrir rétt rúmlega 7 milljónir punda. Ekki er tekið fram hvort Mónakó fái auka greiðslur fyrir skiptin.

Massengo spilaði fjóra leiki í Meistaradeildinni á nýliðnu tímabili og varð þar með yngsti Frakki sögunnar til að spila í keppninni. Hann á sjö leiki að baki fyrir U17 og U18 lið Frakklands.

Táningurinn er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Bristol og var uppi í stúku er liðið tapaði 3-1 gegn Leeds United í fyrstu umferð deildartímabilsins um helgina.

Massengo er sjötti leikmaðurinn sem kemur til félagsins í sumar. Tomas Kalas, Kasey Palmer og Jay Dasilva komu allir frá Chelsea, Daniel Bentley frá Brentford og Robbie Cundy frá Bath City. Sá síðastnefndi var strax lánaður til Exeter út tímabilið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.