06.08.19 - 15:20
Arnar Daði Arnarsson
Haukar fá spænskan miðjumann (Staðfest)

Haukar hafa fengið til sín Spánverja.

Mynd: Hulda Margrét

Haukar hafa fengið til sín Spánverja.

Mynd: Hulda Margrét
Haukar hafa fengið til sín Spánverjann Raul Segura sem er 28 ára miðjumaður sem hefur leikið í Gíbraltar síðustu ár.
Raul Segura lék síðast með Gibraltar Phoenix í úrvasldeildinni í Gíbraltar en auk þess hefur hann leikið með Lynx, Lions Gibraltar og St. Josephs.
Auk þess hefur hann leikið í neðri deildum í heimalandi sínu. Hann hefur nú fengið félagaskipti yfir í Hauka og er því löglegur með liðinu á laugardaginn þegar Haukar fá Magna í heimsókn í fallbaráttuslag Inkasso-deildarinnar.

Haukar eru með 14 stig í 9. sæti deildarinnar í mikilli fallbaráttu við Magna, Njarðvík og Aftureldingu. Sjö umferðir eru eftir af Inkasso-deildinni.