06.08.19 - 19:09
Brynjar Ingi Erluson
Liverpool lánar Harry Wilson til Bournemouth (Staðfest)

Harry Wilson skoraði frábært mark gegn Lyon á dögunum en er nú farinn til Bournemouth

Mynd: Getty Images

Harry Wilson skoraði frábært mark gegn Lyon á dögunum en er nú farinn til Bournemouth

Mynd: Getty Images
Velski landsliðsmaðurinn Harry Wilson er kominn til Bournemouth á láni frá Liverpool.
Wilson er 22 ára gamall og uppalinn hjá Liverpool en hann var á láni hjá Derby County á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 17 mörk í 46 leikjum.
Hann spilaði með Liverpool á undirbúningstímabilinu og skoraði magnað mark gegn Lyon en var ekki í hópnum gegn Manchester City í leik um samfélagsskjöldinn.
Wilson er nú kominn til Bournemouth en hann verður lánaður út leiktíðina en félagið tilkynnti þetta í kvöld. Bournemouth greiðir Liverpool 2,5 milljón punda fyrir lánið.

Harry's here 😍
— AFC Bournemouth (@afcbournemouth) August 6, 2019
We're delighted to confirm @harrywilson_ will be on loan with us for the new season 🤝#afcb 🍒https://t.co/MevyNwJHhd