Fotbolti.net
06.08.19 - 13:11
Elvar Geir Magnússon

Rooney til Derby (Staðfest) - Kemur í janúar

Rooney er 33 ára.

Rooney er 33 ára.

Canon

Mynd: Getty Images

Derby County hefur staðfest að samningar hafi náðst við Wayne Rooney sem kemur til félagsins í janúar.

Hann mun klára tímabilið hjá DC United í bandarísku MLS-deildinni og verður svo orðinn leikmaður og hluti af þjálfarateymi Derby í Championship-deildinni í janúar.

Mel Morris, eigandi Derby, segir að félagið hafi fengið upplýsingar um að Rooney væri að hugsa um að snúa aftur heim til Englands.

Hann gerir 18 mánaða samning við Derby en Phillip Cocu er stjóri hjá félaginu.

Rooney á að vinna bæði við þjálfun hjá aðalliðinu og yngri leikmönnum en hann stefnir á að gera þjálfun að sínu aðalstarfi þegar skórnir fara upp í hillu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.