Fotbolti.net
06.08.19 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Schmidt rekinn eftir þrjá tapleiki í röð - Genesio ráðinn (Staðfest)

Hvert heldur Schmidt næst?

Hvert heldur Schmidt næst?

Canon

Mynd: Getty Images

Roger Schmidt var rekinn frá Beijing Guoan á dögunum eftir tvö ár í starfi. Stjórn félagsins hefur verið gagnrýnd harðlega af reiðum stuðningsmönnum og voru yfir þúsund þeirra mættir á flugvöllinn til að kveðja þjálfarann.
Schmidt stýrði Red Bull Salzburg og Bayer Leverkusen í fimm ár áður en hann hélt yfir í kínverska boltann. Það verður áhugavert að sjá hvaða starf býðst eftir tvö ár í Kína.

Hann átti góðu gengi að fagna í kínverska boltanum enda með eitt af sterkari liðum deildarinnar. Brasilíumennirnir Renato Augusto og Fernando eru hjá félaginu auk sóknarmannsins Cedric Bakambu og auðvitað Nico Yennaris, sem er orðinn kínverskur og ber nafnið Li Ke.

Hann stýrði félaginu til fjórða sætis í kínversku deildinni í fyrra og vann einnig kínverska bikarinn. Í ár er liðið í harðri toppbaráttu við Guangzhou Evergrande, en Schmidt var rekinn eftir þrjá tapleiki í röð.

Tveir leikir töpuðust 1-0 í deildinni og datt liðið úr bikarnum eftir að Graziano Pelle gerði sigurmark andstæðinganna í uppbótartíma.

Bruno Genesio, sem hætti störfum hjá Lyon í apríl, tók við af Schmidt í síðustu viku.

Genesio starfaði hjá Lyon í tólf ár í hinum ýmsu störfum og sem leikmaður var hann hjá félaginu í tíu ár, frá 1985 til 1995.

Hann var aðstoðarþjálfari varaliðsins 2007-2011, aðstoðarþjálfari aðalliðsins 2011-2015 og svo tók hann við aðalliðinu 24. desember 2015.

Genesio stýrði Lyon til 1-2 sigurs á Etihad leikvanginum í fyrra.

Genesio stýrði Lyon til 1-2 sigurs á Etihad leikvanginum í fyrra.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.