Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 06. ágúst 2019 12:24
Elvar Geir Magnússon
Velur Gylfa í draumaliðið sitt
Sinclair valdi Gylfa.
Sinclair valdi Gylfa.
Mynd: Getty Images
Scott Sinclair, leikmaður Celtic, velur í nýjasta blaði FourFourTwo úrvalslið samherja sinna frá ferlinum.

Meðal leikmanna í liðinu er íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson, núverandi leikmaður Everton.

„Ég var liðsfélagi hans hjá Swansea. Hann gaf mér fullt af stoðsendingum svo ég elskaði hann! Tæknilega er Gylfi gríðarlega góður hann er með snilldar aukaspyrnutækni. Utan vallar náðum við líka mjög vel saman," segir Sinclair.

Sinclair hefur leikið með fullt af frábærum leikmönnum í gegnum tíðina, sem fyrrum leikmaður Chelsea og Manchester City.

Úrvalslið Sinclair:

Joe Hart
Micah Richards - John Terry - Vincent Kompany - Ashley Cole
Gylfi Þór Sigurðsson - Scott Brown - David Silva
Arjen Robben - Sergio Aguero - Ryan Giggs
Athugasemdir
banner
banner