Fyrsti leikur dagsins og annar leikur tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni fer fram á Craven Cottage klukkan 11:30 en þar mætast Fulham og Liverpool.
Fulham er nýliði í deildinni en liðið vann Championship deildina á síðustu leiktíð eftir einungis eins árs dvöl. Liverpool endaði í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð en liðið vann Manchester City í leik um Samfélagsskjöldinn um síðustu helgi.
Trent Alexander-Arnold, Mohamed Salah og Darwin Nunez gerðu mörkin fyrir Liverpool í leiknum sem var spilaður á King Power vellinum í Leicester.
Marco Silva, stjóri Fulham, byrjar með Aleksandar Mitrovic upp á topp en hann átti frábært tímabil í Championship deildinni þar sem hann bætti markametið. Andreas Pereira spilar þá sinn fyrsta leik fyrir félagið í dag.
Bernd Leno, sem kom frá Arsenal á dögunum, er á bekknum en Rodak stendur í rammanum hjá Fulham.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, gerir eina breytingu frá sigrinum góða gegn Manchester City.
Alisson Becker er klár í slaginn eftir meiðsli og kemur hann inn í liðið fyrir Adrian.
Ibrahima Konate, Kostas Tsimikas, Alex Oxlade-Chamberlain, Curtis Jones, Diogo Jota og markvörðurinn Caoimhin Kelleher eru allir frá vegna meiðsla.
Fulham: Rodak, Tete, Ream, Adarabioyo, Robinson, Reed, Palhinha, Pereira, De Cordova-Reid, Kebano, Mitrovic.
(Varamenn: Leno, Duffy, Cairney, Solomon, Muniz, Mbabu, Francois, Harris, Stansfield.)
Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Van Dijk, Matip, Robertson, Fabinho, Thiago, Henderson, Salah, Diaz, Firmino.
(Varamenn: Adrian, Gomez, Milner, Elliott, Nunez, Carvalho, Bajcetic, Van den Berg, Chambers.)