06.09.16 - 21:52
Ívan Guðjón Baldursson
Valorie sagt upp hjá Selfossi (Staðfest)

Valorie O\'Brien hefur verið sagt upp störfum.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Valorie O\'Brien stýrði kvennaliði Selfoss ekki í kvöld þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við FH í fallbaráttunni.
Gengi Selfoss á tímabilinu hefur verið afleitt og fannst stjórn knattspyrnudeildar Selfoss vera kominn tími á breytingar í þjálfarateyminu.

Valorie var boðið að halda áfram að spila fyrir Selfoss sem leikmaður en hún afþakkaði.
Guðjón Bjarni Hálfdánarson er tekinn við sem þjálfari liðsins, en hann var ráðinn sem aðstoðarþjálfari fyrr í sumar. Honum til aðstoðar í þjálfarateyminu eru Gunnar Rafn Borgþórsson og Jóhann Bjarnason, þjálfarar meistaraflokks karla, Elías Einarsson markmannsþjálfari og Hildur Grímsdóttir sjúkraþjálfari.
„Við erum Selfossfjölskyldan og við ætlum að klára þetta saman,“ sagði Guðjón Bjarni í samtali við Sunnlenska eftir leikinn gegn FH í kvöld en hann og Gunnar Rafn stýrðu liðinu á hliðarlínunni.

Heimild: Sunnlenska