Fotbolti.net
06.09.19 - 23:27
Ívan Guðjón Baldursson

Inkasso-kvenna: Augnablik úr fallsæti

Inkasso-kvenna: Augnablik úr fallsæti
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Augnablik er komið úr fallsæti eftir góðan 2-0 sigur á ÍA í fallbaráttu Inkasso-deildar kvenna.
Birta Birgisdóttir skoraði í upphafi leiks og innsiglaði Hildur Lilja Ágústsdóttir sigurinn í uppbótartíma á 93. mínútu.

Augnablik er með átján stig þegar tvær umferðir eru eftir. ÍA er með sextán, einu stigi fyrir ofan fallsæti.

Augnablik 2 - 0 ÍA
1-0 Birta Birgisdóttir ('2)
2-0 Hildur Lilja Ágústdóttir ('93)

Fjölnir er einnig í fallhættu eftir 2-0 tap gegn Haukum. Staðan var markalaus fram að 77. mínútu þegar Vienna Behnke skoraði.

Heiða Rakel Guðmundsdóttir innsiglaði sigurinn fjórum mínútum síðar og kom Haukum upp í 3. sæti.

Fjölnir og ÍA eru jöfn á stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Haukar 2 - 0 Fjölnir
1-0 Vienna Behnke ('77)
2-0 Heiða Rakel Guðmundsdóttir ('81)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.