Fotbolti.net
06.09.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson

52 ár síðan Tottenham mistókst að skora þrjá fyrstu leikina

52 ár síðan Tottenham mistókst að skora þrjá fyrstu leikina
Canon

Mynd: EPA

Tottenham Hotspur hefur ekki farið vel af stað undir stjórn Roberto De Zerbi á nýju úrvalsdeildartímabili. Liðið er með eitt stig eftir þrjár umferðir og á enn eftir að skora mark.
„Þetta er ekki Football Manager“
TENGT EFNI

„Þetta er ekki Football Manager“

Þessi herfilega byrjun er ekki sú versta í sögunni, en þetta er í fyrsta sinn sem liðinu mistekst að skora í þremur fyrstu leikjum deildartímabilsins í 52 ár, eða síðan 1974.

Það tímabilið endaði Tottenham aðeins einu stigi frá því að falla úr efstu deild og tveimur tímabilum síðar féll liðið niður um deild.

Tottenham tapaði gegn Brentford og Newcastle í fyrstu leikjum úrvalsdeildartímabilsins áður en liðið náði markalausu jafntefli við Nottingham Forest. Lærlingar De Zerbi rúlluðu þó yfir Charlton í deildabikarnum, lokatölur þar voru 5-1.

De Zerbi biðst afsökunar: Læknateymið ýtti á mig
TENGT EFNI

De Zerbi biðst afsökunar: Læknateymið ýtti á mig

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.