06.10.16 - 19:45
Arnar Geir Halldórsson
Junior Hoilett til Cardiff (Staðfest)

Hoilett í leik með QPR

Mynd: Getty Images

Hoilett í leik með QPR

Mynd: Getty Images
Kanadíski kantmaðurinn Junior Hoilett er genginn til liðs við enska B-deildarliðið Cardiff City.
Hoilett hefur verið án félags að undanförnu og getur því fengið leikheimild með Cardiff þó félagaskiptaglugginn sé lokaður.
Þessi 26 ára gamli á yfir 100 leiki að baki í ensku úrvalsdeildinni fyrir Blackburn og QPR og hefur skorað sautján mörk í úrvalsdeildinni.
Neil Warnock tók nýverið við stjórnartaumunum hjá Cardiff en hann vann með Hoilett hjá QPR á sínum tíma.
Hjá Cardiff hittir Hoilett fyrir fyriliða íslenska karlalandsliðsins, Aron Einar Gunnarsson.