06.10.17 - 14:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heynckes tekur við Bayern (Staðfest)

Heynckes er mættur aftur til Bæjaralands.

Mynd: Getty Images

Heynckes er mættur aftur til Bæjaralands.

Mynd: Getty Images
Jupp Heynckes hefur tekið við Þýskalandsmeisturum Bayern München í fjórða sinn á þjálfaraferli sínum.
Hann tekur við Bayern af Ítalanum Carlo Ancelotti sem var rekinn frá Bayern í síðastliðinni viku.
Hann tekur við Bayern af Ítalanum Carlo Ancelotti sem var rekinn frá Bayern í síðastliðinni viku.
„Það ríkir mikið traust á milli Bayern München og Jupp Heynckes. Við erum þakklátir Jupp að hann hafi ákveðið að taka við starfinu,\" sagði Karl-Heinz Rummenigge, formaður Bayern.
Heynckes er sjálfur mjög sáttur.
„Ég hefði ekki tekið við neinu öðru liði. Ég elska Bayern München,\" sagði hinn 72 ára gamli Heynckes.
Hann stýrði liðinu síðast frá 2011 til 2013 og kláraði samning sinn með því að vinna Meistaradeild Evrópu.