06.10.17 - 10:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Iniesta verður hjá Barcelona út ferilinn (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Andres Iniesta, miðjumaðurinn hæfileikaríki, hefur skrifað undir svokallaðan lífstíðarsamning við Barcelona. Það þýðir að hinn 33 ára gamli Iniesta muni leika í Katalóníu út feril sinn.
Iniesta er næst leikjahæsti leikmaðurinn í sögu Barcelona á eftir vini sínum Xavi. Iniesta hefur leikið 639 leiki fyrir Barcelona.

Iniesta kom upp úr La Masia akademíu Barcelona eins og margir aðrir magnaðir fótboltamenn.
Hann lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið Barcelona árið 2002 og hefur síðan þá unnið spænsku úrvalsdeildina, La Liga, átta sinnum og Meistaradeild Evrópu fjórum sinnum.
Iniesta hefur verið fyrirliði liðsins undanfarin tímabil.
„Andres Iniesta hefur skrifað undir lífstíðarsamning, samning sem þýðir það að hann verði hjá félaginu út feril sinn,\" segir í yfirlýsingu sem Barcelona sendi frá sér í gær.