06.10.17 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Kolo Toure nýr aðstoðarþjálfari Fílabeinsstrandarinnar (Staðfest)

Það eru liðin 15 ár síðan Arsene Wenger fékk Kolo Toure til liðs við sig í Arsenal.

Mynd: Getty Images

Kolo Toure hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari Fílabeinsstrandarinnar þar sem hann mun vera hægri hönd Marc Wilmots, sem stýrði belgíska landsliðinu í fjögur ár áður en hann tók við Afríkuþjóðinni.
Toure lagði skóna á hilluna í sumar og tók við starfi hjá Celtic en heldur nú á heimaslóðir er Fílabeinsströndin reynir að tryggja sig á lokakeppni HM.

Toure á 120 landsleiki að baki fyrir Fílabeinsströndina en á ferli sínum sem leikmaður spilaði hann í sjö ár fyrir Arsenal, fjögur ár fyrir Manchester City og þrjú ár fyrir Liverpool.
Toure vann Afríkukeppnina 2015 með landsliðinu og hefur einnig unnið Úrvalsdeildina tvisvar og enska bikarinn tvisvar.
Fílabeinsströndin heimsækir Malí í kvöld og ætti Toure að vera á hliðarlínunni ásamt Wilmots.
„Mjög ánægður með að sjá stóra bróður minn Kolo vera ráðinn sem aðstoðarþjálfari Fílabeinsstrandarinnar, frábært,\" skrifaði Yaya Toure á Twitter.