Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 06. október 2019 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Solskjær um Liverpool: Fullkomið fyrir okkur
Mynd: Getty Images
Manchester United er í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir átta umferðir með níu stig.

Framundan er landsleikjahlé, en næsti leikur United eftir það er gegn erkifjendunum í Liverpool á Old Trafford. Liverpool er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og hefur unnið alla leiki sína til þessa.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, er þó jákvæður fyrir þann leik.

„Það er fullkominn leikur fyrir okkur. Landsleikjahléið kemur líka á fullkomnum tíma, leikmennirnir hafa gott af því að komast í annað umhverfi. Það myndi ekki hjálpa að hafa fund á morgun. Þeir munu fara í landsliðin sín og koma ferskir til baka."

Sjá einnig:
Solskjær: Tekur eins langan tíma og það tekur
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner