Fotbolti.net
06.10.26 - 22:22
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Gylfi Sig: Þreytandi að deyfa þetta fyrir hvern leik til að geta spilað

Auglýsing
Gylfi er búinn að spila meiddur í glugganum

Gylfi er búinn að spila meiddur í glugganum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eimskip

„Auðvitað bæði svekkjandi að ná ekki að vinna leikinn en ég held að heilt yfir örugglega sanngjörn úrslit,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson eftir 0-0 jafntefli gegn Eistlandi í Tallinn í kvöld. 

Lestu um leikinn: Eistland 0 - 0 Ísland

„Sáttur með að halda hreinu, sáttur með stigið, við erum ennþá efstir í riðlinum. Heilt yfir, svona síðustu þrír leikir mjög góðir, svekkjandi jafntefli í byrjun á móti Eistunum heima en heilt yfir bara fínasti gluggi,“ hélt hann svo áfram.

Eistarnir hafa farið illa með okkur í þessum glugga en leikurinn heima fór 1-1 og nú fer útileikurinn 0-0. Fyrirfram mjög svekkjandi úrslit gegn liðinu sem er 127. á heimslistanum en hvað er það við Eistana sem gerir það svona erfitt fyrir íslenska liðið að spila við?

„Þeir eru bæði líkamlega sterkir, með marga til baka, fimm manna varnarlínu. Í dag var þetta frekar, mér fannst þeir vera betri í fyrstu og seinni boltunum. Líkamlega voru þeir ferskari í fyrri hálfleik, bara erfiðir að brjóta niður.“

Mikið hefur verið rætt um rifbeinsbrot Gylfa síðustu daga, aðspurður hvernig staðan er á skrokknum segir hann:

„Hún er bara allt í lagi. Mikið betri en ég þorði að vona í síðasta leik, þegar ég þurfti að fara út af. Þetta er búið að vera erfitt og þreytandi að deyfa þetta fyrir hvern leik til að geta spilað en maður getur ekki misst af landsleikjum.“

Viðtalið við Gylfa má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.