Fotbolti.net
06.11.16 - 07:00
Kristófer Kristjánsson

Björgvin Stefán framlengir við Leikni F. (Staðfest)

Fyrirliðinn verður áfram

Fyrirliðinn verður áfram

Canon

Mynd: Jóhanna Kr. Hauksdóttir

Björgvin Stefán Pétursson, fyrirliði Leiknis F., hefur framlengt við félagið fyrir komandi átök í Inkasso deildinni næsta sumar en þetta hefur félagið staðfest á Twitter.
Björgvin, 24 ára, hefur verið samningsbundinn Leikni F allan sinn feril og leikið 131 leik og skorað 25 mörk í deild og bikar á þeim 10 árum sem hann hefur verið hjá félaginu.

Hann hefur undanfarin ár verið fastamaður í liði Leiknis F. og verið fyrirliði undanfarin sumur.

Björgvin Stefán Pétursson fyrirliði hefur framlengt við Leikni F. #INKASSO17 pic.twitter.com/aQL9owqEYN

— Leiknir F. (@Leiknirfask) November 5, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.