06.11.16 - 19:57
Kristófer Kristjánsson
Ronaldo gerir nýjan samning við Real Madrid (Staðfest)

Ronaldo verður allavega fimm ár í viðbót í Madrid

Mynd: Getty Images

Real Madrid hefur staðfest að Cristiano Ronaldo hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til ársins 2021.
Mun Portúgalinn knái því vera hjá Real þangað til hann verður 36 ára gamall.
Ekki var gefið upp hvað hann þiggur í laun en líklegt er að hann verði áfram launahæsti leikmaður félagsins.
Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, var hæst ánægður með þessar fregnir.
„Ég er ánægður vegna þess að hann er leikmaður sem þarf að klára ferilinn í Madrid. Það er hans draumur að vera í þessari hvítu treyju alveg til enda, alveg eins og ég gerði sjálfur,\" sagði Zidane.
Ronaldo, sem kom til Real Madrid frá Manchester United árið 2009 fyrir 80 milljónir punda, hefur skorað yfir 350 mörk fyrir félagið ásamt því að vinna meistaradeild Evrópu tvívegis, spænsku deildina einu sinni og spænska bikarinn tvisvar.